JobConnect

Vaktstjóri - Krónan Þorlákshöfn

Krónan leitar að öflugum aðila í fullt starf vaktstjóra á Þorlákshöfn. Verkefni vaktstjóra eru að aðstoða og styðja við verslunarstjóra og stuðla að hvatningu meðal starfsfólks til að ná settum markmiðum.

Vinnutíminn er aðra hverja viku frá kl. 07:00-15:00 og hina vikuna frá 11:00-19:30. Þriðja hver helgi frá kl. 7-15. Mikilvægt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni eru:

  • Efla hópinn í að búa til góða upplifun fyrir viðskiptavini
  • Daglegt skipulag til að fylgja eftir verkferlum og gæðum
  • Vaktaplön og þjálfun
  • Verkstýring starfsfólks
  • Ábyrgð og umsjón með fjármunum
  • Almenn verslunarstörf

Hæfniskröfur:

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
  • Aldurstakmark er 18 ára
  • Íslensku- og enskukunnátta skilyrði

Fríðindi í starfi:

  • Styrkur til heilsueflingar
  • Afsláttarkjör hjá Krónunni, N1, ELKO og Lyfju
  • Aðgangur að Velferðarþjónustu Krónunnar

Krónan býður upp á fjölbreyttan og metnaðarfullan vinnustað þar sem hægt er að hafa áhrif og leiða verkefni með sýnilegum árangri. Hjá Krónunni starfa um eitt þúsund og tvöhundruð manns, við eigum ánægðustu viðskiptavinina 9. árið í röð og erum með jafnlaunavottun.

Umsóknarfrestur er til og með 9. september 2026.

Skills

  • Team Leadership
  • Customer Service
  • Shift Planning
  • Staff Training
  • Inventory Management
  • Cash Handling
  • Icelandic Language

Related jobs

KrónanApply for this job