Hugbúnaðarsérfræðingur
- Verkís
- Iceland
- ISK 8,400,000 – ISK 10,800,000
Við leitum að öflugum liðsauka í tölvuþjónustu Verkís. Tölvuþjónustan ber meðal annars ábyrgð á rekstri og viðhaldi notendaþjónustu, hugbúnaði, netþjónum og skýjalausnum Verkís.
Við leitum eftir jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði, skipulagshæfni og metnaði í starfi og á auðvelt með að tileinka sér nýjungar.
Helstu verkefni snúa að rekstri og viðhaldi Sharepoint, Power Platform, skjalastjórnunarkerfis, CRM- og ERP kerfa. Starfið felur jafnframt í sér þátttöku í samþættingu og sjálfvirknivæðingu kerfa stofunnar ásamt ráðgjöf til stjórnenda við val á tæknilegum útfærslum og samþættingu kerfa.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærileg menntun
- Þekking á rekstri skýjaumhverfa
- Reynsla af notkun gagnagrunna
- Þekking á forritunarmálum
- Þekking á virkni API-viðmóta
- Góð tæknileg yfirsýn og skipulagshæfni
- Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í hópi
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
Gert er ráð fyrir að starfsstöð viðkomandi verði í aðalsstöðvum Verkis í Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2026.
Nánari upplýsingar veitir Áslaug Ósk Alfreðsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, aoa@verkis.is
Skills
- SharePoint administration
- Power Platform
- Cloud Operations
- Database Management
- API Integration
- Programming
- System Integration
