Stuðningsfulltrúi
- Reykjavíkurborg
- Iceland
- ISK 4,800,000 – ISK 6,000,000
Við leitum að hressum og áhugasömum aðila sem er tilbúinn til að sinna skemmtilegu og jafnframt krefjandi starfi.
Brúarskóli er sérskóli fyrir nemendur í 3. - 10. bekk sem hafa átt erfitt með að fóta sig í almennum skóla. Skólinn er tímabundið úrræði og starfar í Vesturhlíð og Grafarvogi. Í starfinu er lögð áhersla á félagsfærni, samskipti og jákvæða uppbyggingu hvers einstaklings.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stuðningur við nemendur í skólastarfi
- Aðstoða nemendur eftir þörfum hvers og eins við athafnir daglegs lífs.
- Auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum.
- Fylgir eftir stefnu skólans og sinnir öðrum verkefnum sem viðkomandi er falið.
Hæfniskröfur:
- Áhugi á að starfa með börnum
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Stundvísi og samviskusemi
- Reynsla í starfi með börnum æskileg
- Góða færni í íslensku
- Hreint sakarvottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameyki. Starfshlutfall er 85%
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Björnsson í síma 411-7970 / 8699829 og tölvupósti olafur.bjornsson@reykjavik.is
Skills
- child support
- Communication
- Patience
- Initiative
- Icelandic Language
- Daily Living Assistance
- Record Keeping


