JobConnect

Starfsfólk í félagsmiðstöð

Naustaskóli leitar að öflugu starfsfólki í félagsmiðstöð skólans. Um er að ræða tímavinnu sem fer fram eftir klukkan 14 og/eða á kvöldin, um 10-25 klukkustundir á mánuði. Starfið er tímabundið fyrir skólaárið 2026-2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni eru:

  • Umsjón og framkvæmd verkefna á vegum félagsmiðstöðva.
  • Vinna með börnum og unglingum á aldrinum 13 til 16 ára.
  • Vera leiðandi fyrirmynd í uppbyggilegu starfi þar sem forvarnir eru hafðar að leiðarljósi, leitast við að efla sjálfsmynd unglinga og virkja þá til uppbyggilegrar þátttöku.
  • Að ná til barna/unglinga, sérstaklega þeirra sem eru illa stödd félagslega.

Hæfniskröfur

  • Áhugi á starfi með börnum og unglingum.
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum kostur.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Samskiptafærni.
  • Hreint sakavottorð.
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veita Bryndís Björnsdóttir skólastjóri, dis@akmennt.is og Arndís Ósk Arnarsdóttir deildarstjóri forvarna- og frístundamála, arndis.osk.arnardottir@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 9. september 2026.

Skills

  • Youth Work
  • Group Facilitation
  • Prevention Programs
  • Communication Skills
  • Initiative
  • Independent Work
  • Clean Criminal Record

Related jobs

AkureyrarbærApply for this job