Starfsfólk í búsetuþjónustu við Hafnarstræti 16
- Akureyrarbær
- Iceland
Velferðarsvið óskar eftir starfsfólki í búsetuþjónustu í búsetukjarnanum Hafnarstræti 16. Um er að ræða 80% vaktavinnu þar sem unnið er á morgun-, kvöld-, nætur- og helgarvöktum. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst, um tímabundna ráðningu er að ræða til áramóta 2026/2027.
Velferðarsvið veitir fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að styðja fólk til sjálfstæðrar búsetu og skapa því aðstæður til að lifa sem eðlilegustu lífi, bæði á eigin heimili og utan þess.
Velferðarsvið Akureyrarbæjar vinnur eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar (gentle teaching) og valdeflingar. Starfsfólk þarf að tileinka sér þessa hugmyndafræði og vinna í samræmi við hana.
Helstu verkefni eru:
- Veita íbúum persónulegan stuðning og aðstoða þá við að njóta menningar-, tómstunda- og félagslífs.
- Aðstoða við allar athafnir daglegs lífs.
- Efla sjálfstæði og frumkvæði íbúa og sýna stuðning og vináttu.
- Vinna samkvæmt öguðum og skipulögðum vinnubrögðum, fylgja þjónustuáætlunum, sinna dagskipulagi og starfa undir handleiðslu fagfólks.
- Sinna almennum heimilisstörfum.
- Eiga samskipti við ýmsa þjónustuaðila.
Hæfniskröfur:
- Nýfengin reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Reynslu skal tilgreina í umsókn.
- Góð samskiptahæfni og áhugi á að starfa með fólki.
- Lipurð, jákvæðni, kurteisi og trúnaður í samskiptum við íbúa, samstarfsfólk og aðra sem tengjast starfinu.
- Vandvirkni, samviskusemi og þagmælska.
- Sveigjanleiki vegna mismunandi þarfa þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
- Frumkvæði, samstarfshæfni og sjálfstæði í starfi.
- Jákvætt viðhorf til fólks með fötlun og réttinda þeirra.
- Þekking á þjónandi leiðsögn og valdeflingu er kostur.
- Bílpróf á beinskiptan bíl.
- Góð íslenskukunnátta.
- Gott líkamlegt og andlegt atgervi.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hlynur Már Erlingsson í síma 460-1404 eða í netfanginu hlynurmar@akureyri.is milli kl. 09 og 15 virka daga.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar www.akureyri.is
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 9. september 2026.
Skills
- Personal care
- Support planning
- Gentle Teaching
- Empowerment
- Communication
- Teamwork
- Flexibility

