JobConnect

Aðstoðarforstöðumaður í sértækri félagsmiðstöð

Frístundamiðstöðin Brúin leitar að aðstoðarforstöðumanni í sértæku félagsmiðstöðin Höllina, afleysing til eins árs! Höllin er staðsett í Egilshöll og þjónustar fötluð börn að skóla loknum á aldrinum 10-16 ára í Árbæ, Norðlingaholti, Grafarholti og Úlfarsárdal og Grafarvogi.

Við óskum eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling með menntun og reynslu sem nýtist í starfi.

Markmið starfsins er að veita fötluðum börnum, unglingum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi starfsins eru höfð að leiðarljósi. Það felur í sér að að veita börnunum frítímaþjónustu óháð aldri þeirra, áhugasviði eða getu í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.

Höllin tilheyrir Frístundamiðstöðinni Brúnni. Brúin starfrækir níu félagsmiðstöðvar í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti og Úlfarsárdal sem heita Ársel, Holtið, Fjörgyn, Sigyn, Vígyn, Fellið, Plútó, Fókus og sértæka félagsmiðstöðin Höllin.

Helstu verkefni og ábyrgð

* Skipulagning á faglegu félagsmiðstöðvarstarfi fyrir fötluð börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára.

* Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.

* Samráð og samvinna við börn, unglinga og starfsfólk.

* Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.

* Starfsmannamál.

* Framkvæmd og skipulag starfsins í samvinnu við starfsmenn og ungmenni út frá viðmiðum og starfsreglum SFS.

*Aðstoðarforstöðumaður er staðgengill forstöðumanns

Hæfniskröfur

* Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.

* Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.

* Reynsla af starfi með börnum og unglingum.

* Reynsla af frítímastarfi.

* Reynsla af stjórnun.

* Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

* Skipulags og stjórnunarhæfileikar.

* Góð færni í samskiptum.

* Almenn tölvu og samskiptamiðla kunnátta.

* Góð íslenskukunnátta.

Vinsamlegast látið ferilskrá fylgja umsókn.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis, launaflokkur 270.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísa Pálsdóttir , forstöðumaður í félagsmiðstöðinni Höllinni, elisa.palsdottir@reykjavik.is

Frístundamiðstöðin Brúin

Austurmiðstöð

Skills

  • Leisure and youth work
  • special education
  • Program Planning
  • Staff Supervision
  • Parent Communication
  • Collaboration with schools
  • Child Safeguarding

Related jobs

ReykjavíkurborgApply for this job