Support Worker
- Garðabær
- Garðabær, Iceland
Frístundaklúbburinn Garðahraun auglýsir eftir starfsfólki.
Opnunartími Garðahrauns er frá 13:00 – 16:30 alla virka daga.
Í boði eru hlutastörf og tímavinnustörf með vinnutíma eftir hádegi eftir samkomulagi. Þetta starf hentar vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.
Garðahraun er sértækt frístundarúrræði fyrir börn með fötlun í 5.-10.bekk í grunnskólum Garðabæjar og staðsett við Álftanesskóla. Markmið frístundarinnar er að veita börnum sem þar dvelja öruggt athvarf og bjóða þeim upp á skipulagðar tómstundir við hæfi hvers og eins. Lögð er áhersla á virðingu fyrir einstaklingnum, fagleg vinnubrögð, jákvæð samskipti og foreldrasamstarf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að styðja nemendur með sérþarfir
- Að stuðla að jákvæðu umhverfi barna og vera öðrum fyrirmynd
- Að efla velferð og félagslegan þroska barnanna
- Að fylgja eftir áætlunum og verklagsreglum
- Samráð og samvinna við börn, foreldra, samstarfsfólk og aðra sem koma að frístundarstarfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Jákvæðni og ábyrgðarkennd
- Frumkvæði og lausnamiðað viðhorf
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
- Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
- Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Umsóknarfrestur er til og með 9. september 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ágúst Arnar Þráinsson, forstöðumaður Garðahrauns, netfang: agustthr@gardabaer.is og sími: 820-8594 og 525-8594.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.
Áhugasamir einstaklingar, án tilliti til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Skills
- Icelandic (B2)
- special education
- childcare
- Recreation
- First aid
- Communication
- Teamwork


