Verkefnastjóri skipulagsmála
- Akureyrarbær
- Iceland
- ISK 8,400,000 – ISK 10,800,000
Viltu taka þátt í að móta framtíð Akureyrarbæjar? Ef svo er, þá er laus til umsóknar spennandi staða verkefnastjóra skipulagsmála.
Um 100% stöðu er að ræða með sveigjanlegum vinnutíma. Meginstarfstöð er í Ráðhúsi Akureyrar.
Möguleiki er að vinna í fjarvinnu af og til ef það hentar, 36 klst. vinnuvika og mötuneyti á vinnustað.
Næsti yfirmaður er skipulagsfulltrúi.
Helstu verkefni eru:
- Umsjón með aðal- og deiliskipulagsverkefnum á vegum bæjarins í samvinnu við skipulagsfulltrúa og aðra hagsmunaaðila.
- Umsjón með stjórnsýslu varðandi afgreiðslu skipulagsmála
- Vinna að kynningarmálum um skipulagsmál
- Annast samskipti við Skipulagsstofnun og aðrar opinberar stofnanir.
- Veita upplýsingar um skipulagsmál til íbúa- og annarra hagsmunaaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um háskólamenntun (BA, BS eða B.Ed.) í arkitektúr, landslagsarkitektúr, skipulagsfræði, landfræði, eða aðra menntun sem nýtist í starfi.
- Starfsreynsla á sviði skipulagsmála er kostur.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og verklagi er kostur.
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi og færni til að tileinka sér nýjungar.
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og rík þjónustulund.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi í síma 460-1142 eða í gegnum netfangið peturingi@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2026.
Skills
- Urban Planning
- Land Use Planning
- Public administration
- Stakeholder Engagement
- GIS
- Regulatory Compliance
- Icelandic Language

