JobConnect

Traffic Infrastructure Design Engineer

  • EFLA
  • Iceland
  • ISK 9,600,000 – ISK 14,400,000

EFLA leitar að hæfileikaríkum sérfræðingi með þekkingu og reynslu í hönnun umferðarmannvirkja til að starfa á starfsstöðvum fyrirtækisins. Viðkomandi kemur til með að taka þátt í fjölbreyttum hönnunarverkefnum gatna, vega og stíga.

Helstu verkefni

  • Hönnun og skipulag gatna, vega og stíga
  • Þátttaka í þróun og útfærslu á umferðarmannvirkjum
  • Samstarf við hönnunarteymi og ytri samstarfsaðila
  • Hönnun og verkefnastjórnun

Hæfniviðmið:

  • Menntun sem nýtist í starfi, byggingarverkfræði eða byggingartæknifræði
  • Reynsla af hönnun gatna / samgönguverkefna er æskileg.
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi, ásamt lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Reynsla í notkun hönnunarforrita t.d. NovaPoint, Civil3D, AutoCad o.fl.
  • Gott vald á íslensku og ensku, þekking á Norðurlandamáli er kostur

Vinnustaðurinn EFLA

EFLA er þekkingarfyrirtæki sem starfar á sviði verkfræði og tækni.

EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Um fjórðungur starfsfólks EFLU starfar á landsbyggðinni.

Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda.

Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.

EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri.

Nánari upplýsingar um vinnustaðinn

Nánari upplýsingar um stefnur EFLU og persónuverndaryfirlýsing til umsækjenda

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á efla.is

Skills

  • Civil 3D
  • AutoCAD
  • Novapoint
  • Road Design
  • Traffic Engineering
  • Project Management
  • Icelandic

Related jobs

EFLAApply for this job