JobConnect

Lyfja Ísafirði - þjónusta og ráðgjöf

  • Lyfja
  • Ísafjörður, Iceland
  • ISK 3,600,000 – ISK 4,200,000

Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslustarf í Lyfju Ísafirði. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun.

Hlutverk og ábyrgð

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Reynslu af störfum í apóteki (kostur)

Starfið

Um hlutastarf er að ræða og vinnutími er 10:00-16:00 eða samkvæmt samkomulagi.

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Þ. Birgisson, lyfsali í síma 456-3009 og á jonas@lyfja.is

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Skills

  • Customer Service
  • Pharmacy Dispensing
  • Product Knowledge
  • Icelandic
  • English
  • Inventory Management
  • Communication

Related jobs

LyfjaApply for this job