Meiraprófsbílstjóri á Patreksfirði
- Eimskip
- Iceland
- ISK 5,400,000 – ISK 6,600,000
Eimskip innanlands leitar að ábyrgum og þjónustulunduðum meiraprófsbílstjóra til starfa í áætlunarakstri á milli Reykjavíkur og Patreksfjarðar. Um er að ræða fjölbreytt starf í fallegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á öryggi, stundvísi og góða þjónustu.
Starfið felur í sér akstur flutningabíla, lestun og losun, sem og samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk. Viðkomandi þarf að vera stundvís, skipulagður í vinnubrögðum og búa yfir framúrskarandi þjónustulund. Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni í fyrsta flokks vinnuaðstöðu þar sem fagmennska og öryggi eru í forgrunni.
Starfið tilheyrir Innanlandssviði Eimskips, en á sviðinu starfa um 400 starfsmenn í fjölbreyttum störfum á 18 starfsstöðvum víðs vegar um landið.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Akstur flutningabíla
- Lestun og losun
- Samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Meirapróf CE er skilyrði
- Lyftararéttindi eru kostur
- ADR réttindi eru kostur
- Góð íslensku og/eða ensku kunnátta
- Geta til að vinna undir álagi
- Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
- Hæfni í mannlegum samskiptum og sjálfstæð vinnubrögð
Við bjóðum:
- Aðgang að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur frábær orlofshús um allt land
- Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira
- Fjölbreytt verkefni og góðan starfsanda í litlu og samheldnu teymi.
- Nýjan og vel útbúin flutningabíl
Í anda jafnréttisstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hilmar Blöndal Sigurðsson, afgreiðslustjóri, hrbn@eimskip.com.
Umsóknarfrestur er til og með 15.september 2026.
Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.
Skills
- CE License
- Truck Driving
- Loading and Unloading
- Customer Service
- Punctuality
- Route Planning
- Safety Compliance