Þjónustufulltrúi í Heimaþjónustu Reykjavíkur
- Reykjavíkurborg
- Iceland
- ISK 4,800,000 – ISK 6,000,000
Heimaþjónusta Reykjavíkur Norðvestur leitar að jákvæðum og skipulögðum aðila með mikla þjónustulund í starf þjónustufulltrúa. Um er að ræða tímabundið starf í 100% starfshlutfalli á dagvinnutíma, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Þjónustufulltrúi ber ábyrgð á símsvörun í deild sameinaðrar heimaþjónustu og veitir almennar upplýsingar um starfsemina. Starfið felur í sér samskipti við notendur þjónustunnar, aðstandendur og starfsfólk ásamt skipulagningu og eftirfylgni verkefna.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Afgreiðsla erinda, símsvörun og móttaka beiðna
· Leiðbeiningar og aðstoð við einstaklinga vegna heimaþjónustu
· Skjalavinnsla og frágangur gagna
· Umsjón með bifreiðum heimaþjónustu skv. reglum sem í gildi eru
· Umsjón með innkaupum vegna skrifstofuhalds og reksturs
· Virk þátttaka í þróun þjónustu
· Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að verða falin af yfirmanni
Menntun-og hæfniskröfur
· Stúdentspróf
· Íslenskukunnátta C1 (samkvæmt samevrópska tungumálaramma)
· Reynsla af þjónustu- og/eða skrifstofustörfum
· Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
· Framtakssemi, sjálfstæði og metnaður í starfi
· Tölvukunnátta og geta til að tileinka sér ný kerfi
· Skipulögð vinnubrögð
· Starfsmaður þarf að geta unnið undir álagi.
· Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
· Ökuréttindi
· Þekking og reynsla af velferðarþjónustu er æskileg
· Enskukunnátta eða önnur tungumálakunnátta er kostur
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis stéttarfélags
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrefna Guðmundsdóttir, í gegnum netfangið Hrefna.Gudmundsdottir@reykjavik.is eða síma 411-1590.
Skills
- Customer Service
- Phone Etiquette
- Icelandic Language (C1)
- Microsoft Office
- Record Keeping
- Scheduling
- Driving License