JobConnect

Compliance Specialist

  • Isavia ohf
  • Keflavík, Iceland
  • ISK 10,800,000 – ISK 14,400,000

Isavia leitar að öflugum sérfræðingi til starfa í Hlítnideild.

Um er að ræða fjölbreytt sérfræðistarf þar sem megináhersla er á framkvæmd innri úttekta, mat á hlítni við gildandi kröfur og eftirfylgni með úrbótum innan starfsleyfisskyldrar starfsemi félagsins.

Hlítnideild sinnir óháðu eftirliti með því að starfsemi Isavia sé í samræmi við ytri og innri kröfur. Starfið felur í sér náið samstarf við stjórnendur og sérfræðinga þvert á félagið og veitir góða yfirsýn yfir fjölbreytta starfsemi í flugumhverfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Framkvæma innri úttektir og meta hlítni við gildandi kröfur.
  • Greina niðurstöður, skrá frávik og kynna niðurstöður fyrir stjórnendum.
  • Fylgja eftir úrbótum og sannreyna framkvæmd þeirra.
  • Taka þátt í þróun hlítnistjórnunar og úttektarstarfsemi félagsins.
  • Veita ráðgjöf og stuðning til stjórnenda varðandi hlítni við kröfur.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Góð greiningarhæfni og geta til að tileinka sér kröfur og verklag.
  • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Hæfni til að miðla niðurstöðum með skýrum, faglegum og málefnalegum hætti.
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
  • Reynsla af flugleiðsögu, flugvallarrekstri eða flugvernd er kostur.
  • Reynsla af innri úttektum, hlítnistjórnun eða sambærilegum verkefnum er kostur.

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 14. september 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Andri, forstöðumaður öryggisstjórnunar, í gegnum netfangið andri.stefans@isavia.is

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Skills

  • Internal Audit
  • Compliance
  • Risk assessment
  • Regulatory Knowledge
  • Data Analysis
  • Report Writing
  • Icelandic

Related jobs

Isavia ohfApply for this job