JobConnect

Passenger Service Team Leader

  • Isavia ohf
  • Keflavík, Iceland
  • ISK 7,200,000 – ISK 9,600,000

Við leitum að öflugum leiðtoga í teymi hópstjóra í Farþegaþjónustu. Hópstjórar sinna daglegri stjórnun vakta, eru hluti af stjórnendateymi Farþegaþjónustu og taka þátt í mótun stefnu og framtíðarsýnar einingarinnar. Við leitum að einstaklingi með jákvætt viðmót, framúrskarandi samskiptahæfni og drifkraft til að leiða öflugt teymi í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi.

Meginhlutverk Farþegaþjónustu er að veita farþegum aðstoð, meðal annars þeim sem þurfa sérstaka aðstoð við að komast leiðar sinnar um Keflavíkurflugvöll. Deildin sinnir jafnframt fjölbreyttum verkefnum sem stuðla að góðri upplifun farþega á Keflavíkurflugvelli, meðal annars upplýsingagjöf, aðstoð við landamæri, flæðisstýringu og öðrum þjónustuverkefnum.

Um er að ræða tímabundna ráðningu til allt að 18 mánaða með möguleika á áframhaldandi starfi. Starfið er fullt starf í vaktavinnu samkvæmt 5-5-4 vaktakerfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Leiða daglega starfsemi farþegaþjónustu og tryggja skilvirkan, öruggan og faglegan rekstur
  • Veita starfsfólki leiðsögn, stuðning og endurgjöf og stuðla að jákvæðu og árangursríku starfsumhverfi
  • Ráðningar, móttaka og starfslok starfsfólks í samstarfi við mannauð
  • Skipulagning og eftirfylgni með þjálfun, réttindum og frammistöðu starfsfólks
  • Nýta gögn og greiningar til að styðja við ákvarðanatöku, mannaflaspár og vaktaskipulag
  • Tryggja að verklag, öryggiskröfur og gæðaviðmið séu virt í daglegri starfsemi
  • Greina tækifæri til aukinnar skilvirkni og leiða umbótaverkefni sem stuðla að betri þjónustu og farþegaupplifun

Hæfniskröfur:

  • Góð samskipta- og leiðtogahæfni
  • Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að taka ákvarðanir í síbreytilegu umhverfi
  • Greiningarhæfni og færni í mannaflaskipulagi og forgangsröðun verkefna
  • Jákvætt viðhorf, drifkraftur og hæfni til að hvetja aðra til árangurs
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Reynsla af stjórnunarstörfum er kostur

Starfsstöð: Keflavíkurflugvöllur

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 17. september 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga María Finnbjörnsdóttir, deildarstjóri Farþegaþjónustu, Helga.Finnbjornsdottir@isavia.is

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Skills

  • Team Leadership
  • Staff Scheduling
  • Customer Service
  • Performance Management
  • Training Development
  • Data Analysis
  • Process Improvement

Related jobs

Isavia ohfApply for this job