JobConnect

Hjúkrunarfræðingur

Heilsuvernd óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sitt öfluga ráðgjafateymi tengt heilsu- og vinnuverndarþjónustu. Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum en geta um leið verið hluti af sterku teymi.

Um er að ræða starfshlutfall á bilinu 75-95% þar sem unnið er á dagvinnutíma og er starfsaðstaða í Urðarhvarfi í Kópavogi.

Heilsuvernd er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Heilsuvernd er einkarekið og ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, almennri heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir hjúkrunarheimili. Markmið Heilsuverndar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi og faglega þjónustu.

  • Helstu verkefni og ábyrgð

  • Heilsufarsráðgjöf til einstaklinga

  • Heilsufarsskoðanir

  • Bólusetningar

  • Fræðsla

  • Forvarnir

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Próf og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur

  • Þjónustulund og gott viðmót

  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Rík þjónustulund og ánægja af samskiptum

  • Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg

Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2026.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað. Ráðið er í starfið óháð kyni. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Gyða Hauksdóttir fagstjóri hjúkrunarráðgjafar (gudrungyda@hv.is) eða Sigríður Ólafsdóttir fagstjóri heilsufarsþjónustu (sigridur@hv.is).

Skills

  • Nursing
  • Health Assessment
  • Vaccination
  • patient education
  • preventive care
  • Icelandic Language
  • Electronic Health Records

Related jobs

Heilsuvernd HjúkrunarheimiliApply for this job