JobConnect

Assistant Store Manager

  • Samkaup hf.
  • Borgarnes, Iceland
  • ISK 4,500,000 – ISK 6,000,000

Nettó Borgarnesi leitar að aðstoðarverslunarstjóra. Um er að ræða fullt starf. Starfið krefst þess að starfsmaður vinni sjálfstætt eftir skipulagi vinnustaðar og geti auk þess forgangsraðað verkefnum.

Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.

Nettó er skemmtilegur og líflegur vinnustaður og hentar starfið einstaklingum af öllum kynjum.

Helstu verkefni

  • Umsjón með verslun

  • Styðja við störf verslunarstjóra og sjá um afleysingar þegar þörf er á

  • Áfyllingar á vörum

  • Afgreiðsla

  • Pantanir á vörum

  • Þjónusta við viðskiptavini

  • Framstillingar

  • Önnur tilfallandi störf

Hæfniskröfur:

  • Víðtæk reynsla af verslunarstörfum

  • Rík þjónustulund og skilningur á þörfum viðskiptavina

  • Góð samskiptahæfni

  • Sjálfstæð vinnubrögð og jákvæðni

  • Snyrtimennska

  • Skipulögð vinnubrögð

  • Stundvísi og áræðni

Annað:

  • Heilsustyrkur

  • Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa

  • Velferðaþjónusta

Allar nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri í gegnum netfangið: edda.gudjonsdottir@netto.is

Samkaup hefur hlotið Menntasprota atvinnulífsins, Hvatningarverðlaun jafnréttismála og auk þess hlotið jafnlaunavottun Jafnréttisstofu.

Samkaup rekur 62 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Prís, SPAR, Krambúðin og 10-11. Hjá félaginu starfa um 1400 starfsmenn í um 650 stöðugildum.

Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinist einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! og er stefna sem er unnið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.

Skills

  • Retail sales
  • Customer Service
  • Inventory Management
  • Merchandising
  • Team Leadership
  • Communication
  • Store Operations

Related jobs

Samkaup hf.Apply for this job