Aðstoðarleikskólastjóri, Leikskólinn Birkilundur
- Sveitarfélagið Skagafjörður
- Iceland
- ISK 7,200,000 – ISK 9,000,000
Leikskólinn Birkilundur í Varmahlíð óskar eftir að ráða aðstoðarleikskólastjóra í 100% starf eða samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Aðstoðarleikskólastjóri er staðgengill leikskólastjóra. Hann er leiðandi aðili í skipulagi faglegs starfs innan leikskólans og tekur virkan þátt í stjórnun og umsjón starfsmannamála ásamt virku samstarfi við foreldra. Hann sinnir einnig starfi tengiliðs farsældar og ber ábyrgð á skipulagningu, framkvæmd og endurmati stuðningsþjónustu.
Í Birkilundi er lögð áhersla á málörvun og félagsfærni. Birkilundur er í samstarfsverkefni með Varmahlíðarskóla þar sem áhersla er lögð á félagsleg samskipti. Í leikskólanum Birkilundi eru fjórar deildir fyrir börn á aldrinum 1-6 ára.
Helstu verkefni eru:
- Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans.
- Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
- Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins.
- Er tengiliður farsældar.
- Ber ábyrgð á skipulagningu, framkvæmd og endurmati stuðningsþjónustu.
- Ber ásamt leikskólastjóra ábyrgð á að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans, að áætlanir þar um séu gerðar og reglulegt mat fari fram.
- Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra.
- Situr foreldrafundi, starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er leikskólastjóri segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
- Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla.
- Framhaldsnám í stjórnun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi æskileg.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi.
- Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli og geta átt samskipti á íslensku við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.
- Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla.
Leikskólakennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, skólastefnu sveitarfélagsins sem og öðrum stefnum sveitarfélagsins sem í gildi eru á hverjum tíma og við eiga.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Arnljótsdóttir, leikskólastjóri; birkilundur@skagafjordur.is, 453 8215.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins: www.skagafjordur.is. Prófskírteini, leyfisbréf og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Skills
- Early Childhood Education
- Staff Supervision
- Curriculum Planning
- Child Development
- Parent Communication
- Special Needs Support
- Educational Leadership


