ÍSAT Teacher – Icelandic as a Second Language
- Reykjavíkurborg
- Reykjavík, Iceland
- ISK 8,400,000 – ISK 10,800,000
Vesturbæjarskóli auglýsir stöðu umsjónarkennara
Vesturbæjarskóli er í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 320 nemendur í 1.-7. bekk og 55 starfsmenn. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti sem kennarar hafa sameinast um, verk- og listgreinakennslu, valtíma og útikennslu og markvisst er unnið að skólaþróun. Kennarar vinna í teymum og deila ábyrgð á námi og velferð nemenda. Skólabragurinn einkennist af jákvæðum anda, samstarfi og virðingu.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda í samráði við stjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Áhersla á góða samvinnu og teymiskennslu í árgöngum.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Menntunar og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu námsumhverfi.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Góð íslenskukunnátta.
- Hreint sakarvottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Um er að ræða stöðu ÍSAT kennara sem kennir íslensku sem annað tungumál í 70-100% starf.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Nánari upplýsingar gefur Margrét Einarsdóttir skólastjóri, margret.e@reykjavik.is
Skills
- Icelandic as a second language teaching
- Curriculum Development
- Team Teaching
- Student Assessment
- Classroom Management
- Parent Communication
- School development

