Leikskólakennari/leiðbeinandi
- Reykjavíkurborg
- Iceland
- ISK 6,000,000 – ISK 7,200,000
Skólinn er nú þriggja deilda leikskóli með 48 börn. Fyrirhugað er að opna nýja deild í viðbyggingu sem nú er í undirbúningi. Gert er ráð fyrir að 18 börn verði á nýju deildinni og að leikskólinn verði þá fjögurra deilda með alls 66 börn.
Leikskólinn er staðsettur við Tungusel í Seljahverfi. Í nágrenninu er Seljadalur þar sem umhverfið er afar fallegt og fjölbreytt í óspilltri náttúrunni. Dalurinn býður upp á ótal kennslumöguleika með börnum þar sem m.a. má finna læki, tré, gróður og dýralíf. Það eru fjölbreytt og skemmtileg verkefni framundan í Seljaborg.
Starfsmannahópurinn er samheldinn og innan hans ríkir góður starfsandi.
Óskað er eftir aðila sem er tilbúinn til að taka þátt og þróa starfið og vera um leið hluti af heildarsýn skólans og því faglega starfi sem þar fer fram.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara eða sambærileg menntun og/eða reynsla sem nýtist.
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Góð íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum
Fríðindi í starfi
Afsláttur af leikskólagjöldum í Reykjavík
Ókeypis í sundlaugar Reykjavíkurborgar með S-kortinu
Árlegur heilsuræktarstyrkur þegar þú hefur starfað í 6 mánuði
Ókeypis bókasafnskort og frítt á söfn með Menningarkortinu 36-38 stunda vinnuvika.
Laun eru samkvæmt samningi sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/félags leikskólakennara.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Dóra Hlíðdal Magnúsdóttir leikskólastjóri, inga.dora.hliddal.magnusdottir@reykjavik.is
Skills
- Early Childhood Education
- Teaching
- Curriculum Planning
- Parent Communication
- Child Development
- Icelandic Language
- Classroom Management



