Stuðningsfulltrúi
- Reykjavíkurborg
- Iceland
- ISK 4,200,000 – ISK 5,400,000
Víkurskóli er staðsettur í norðanverðum Grafarvogi og er unglingaskóli fyrir 8.-10. bekk. Skólinn er nýsköpunarskóli þar sem lögð er áhersla á að þróa nýjar lausnir í námi og kennslu, öfluga teymisvinnu og virka og lýðræðislega þátttöku nemenda skólastarfinu.
Í Víkurskóla er meginstefið nýsköpunarhugsun, lausnarleit, tækni og teymisvinnu sem og leiðsagnarnám og uppeldi til ábyrgðar.
Víkurskóli er með regnbogavottun frá Reykjavíkurborg og er þátttakandi í grænum skrefum borgarinnar.
Leitað er að duglegum og kraftmiklum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna með unglingum, starfa í teymum, aðstoða nemendur í daglegu skólastarfi.
Hægt er að kynna sér starfið á Facebooksíðu skólans Víkurskóli - nýsköpunarskoli https://www.facebook.com/profile.php?id=100063441866965
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða nemendur undir handleiðslu sérkennara í námsveri skólans.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Hæfniskröfur
- Hæfni til að vinna með unglingum
- Lipurð í samskiptum, hæfni og áhugi á að vinna í teymum og sveigjanleiki í starfi
- Góð íslenskukunnátta - kröfur um C1 samkvæmt Evrópska tungumálastaðlinum
Upplýsingar um starfið
- Starfshlutfall 50-60% (hentar vel þeim sem eru í fjarnámi
- Umsóknarfrestur er til 11. september 2026
- Laun eru samkvæmt samningi Sameykis og Reykjavíkurborgar
Hlunnindi
- Samgöngustyrkur, sund- og menningarkort
- Ódýrt og gott mötuneyti og skemmtilegt samstarfsfólk
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svava Margrét Ingvarsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 411-7800 á skrifstofutíma og í tölvupósti Svava.Margret.Ingvarsdottir@reykjavik.is
Skills
- student support
- Special Education Assistance
- Team Collaboration
- Icelandic (C1)
- Adolescent Development
- Communication Skills
- Flexibility


