JobConnect

Gagnasérfræðingur

  • Sýn
  • Reykjavík, Iceland
  • ISK 9,000,000 – ISK 12,000,000

Sýn leitar að metnaðarfullum sérfræðingi til starfa við gagnavinnslu og greiningar í gagnateymi Sýnar. Viðkomandi mun vinna þvert á einingar innan félagsins og mun taka þátt í spennandi uppbyggingu á nýju gagnaumhverfi með hagnýtingu gervigreindar í forgrunni. Ef þú ert með góða greiningarhæfni, tæknilæsi og lausnamiðaða hugsun þá hvetjum við þig til að sækja um starfið.

Helstu verkefni:

  • Þátttaka í þróun á nýju gagnaumhverfi.
  • Rekstur á gagnaumhverfi félagsins; gagnakeyrslur, teningar, sjálfvirkt eftirlit o.fl.
  • Uppsetning og viðhald á skýrslum, teningum og mælaborðum.
  • Sértækar gagnaúttektir og skýrslur.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í verkfræði, stærðfræði, tölvunarfræði eða öðru sem nýtist í starfi.
  • Reynsla og áhugi á notkun gervigreindar.
  • Þekking á gagnagreiningu, líkanagerð og forritun (t.d. SQL, python).
  • Reynsla af Power BI eða öðrum greiningartólum.
  • Reynsla af gagnavinnslu í skýjaumhverfi er kostur, svo sem Databricks, Spark eða sambærilegu.
  • Sjálfstæð vinnubrögð, áhugi og áreiðanleiki.
  • Gott skipulag og hæfni í mannlegum samskiptum.

Hvað höfum við að bjóða þér?

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift
  • Streymisveitu Sýnar og Viaplay
  • Árlegan heilsustyrk
  • Símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu

Hver erum við?

Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Við hvetjum áhugasama af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 13. september nk. Umsóknir eru rýndar jafnóðum og þær berast.

Nánari upplýsingar fást hjá Mannauði á mannaudur@syn.is.

Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningavefinn okkar.

Skills

  • SQL
  • Python
  • Power BI
  • Databricks
  • Spark
  • Data Modeling
  • Data Warehousing

Related jobs

SýnApply for this job