JobConnect

Matráður

Í Giljaskóla er laus til umsóknar 100% staða matráðs. Vinnutími er frá kl. 7:30–15:30. Ráðið er í stöðuna frá 1. nóvember 2026 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða tímabundið starf út skólaárið 2026–2027, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Giljaskóli er staðsettur við Kiðagil. Í skólanum eru um 370 nemendur og um 90 starfsmenn.

Giljaskóli starfar eftir samskipta- og uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar – uppbygging sjálfsaga. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og réttindaskóli UNICEF.

Í skólanum er sérdeild sem sinnir kennslu og þjálfun barna með fjölbreyttar fatlanir. Giljaskóli er framsækinn skóli sem hefur verið í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun náms- og kennsluhátta.

Einkunnarorð Giljaskóla eru „Ábyrgð - Virðing - Vinsemd“.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.giljaskoli.is

Helstu verkefni eru:

  • Er verkstjóri í eldhúsi/mötuneyti Giljaskóla.
  • Sér um framfylgd matseðla og ber ábyrgð á sérstökum matseðlum fyrir nemendur með fæðuóþol eða aðrar sérþarfir tengdar mataræði.
  • Annast matreiðslu og hefur umsjón með hádegismat í mötuneyti og síðdegishressingu fyrir nemendur í skólavistun. Sinnir einnig tilfallandi veitingum á fundum og mat fyrir starfsfólk á starfsdögum.
  • Sér um innkaup fyrir mötuneyti skólans og kaffistofu starfsfólks. Fylgist með rekstrarstöðu mötuneytis og leitast við að innkaup séu hagkvæm.
  • Sér um frágang og uppvask eftir máltíðir og kaffitíma.
  • Annast frágang í mötuneyti og dagleg þrif í eldhúsi.

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem matartæknir er æskileg.
  • Góð þekking á gerð og framreiðslu matar.
  • Reynsla af starfi í mötuneyti eða skólaeldhúsi.
  • Þekking á ráðleggingum Lýðheilsustöðvar varðandi skólamáltíðir er æskileg.
  • Almenn tölvuþekking.
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
  • Er skipulagður, sýnir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt.
  • Stundvísi, reglusemi og samviskusemi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Starfsmenn skólans gegna störfum sínum samkvæmt grunnskólalögum, reglugerðum, starfslýsingum, kjarasamningum og mannauðsstefnu Akureyrarbæjar eftir því sem við á.

Við ráðningu í starfið verður tekið mið af mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is.

Nánari upplýsingar veitir Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri, í síma 462-4820 eða með tölvupósti á elias@akmennt.is.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 14. september 2026.

Skills

  • Food Preparation
  • Menu Planning
  • Kitchen Management
  • Inventory Management
  • Food Safety
  • Special Dietary Needs
  • Cleaning and Sanitation

Related jobs

AkureyrarbærApply for this job