JobConnect

Meiraprófsbílstjóri

  • Eimskip
  • Iceland
  • ISK 6,600,000 – ISK 8,400,000

Eimskip innanlands leitar að ábyrgum og þjónustuliprum meiraprófsbílstjóra með CE réttindi í framtíðarstarf á kvöldvakt. Unnið er alla virka daga frá kl.16:00-24:00.

Um er að ræða starf við vörudreifingu á höfuðborgarsvæðinu, lestun og losun, sem og samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk. Viðkomandi þarf að vera stundvís, skipulagður í vinnubrögðum og búa yfir framúrskarandi þjónustulund. Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni í fyrsta flokks vinnuaðstöðu þar sem fagmennska og öryggi eru í forgrunni.

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Vörudreifing í Reykjavík og nágrenni
  • Lestun og losun hjá viðskiptavinum
  • Jákvæð samskipti og framúrskarandi þjónusta til viðskiptavina
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Meirapófa CE er skilyrði
  • Réttindi til aksturs í atvinnuskyni er skilyrði
  • Lyftararéttindi er kostur
  • ADR réttindi er kostur
  • Góð íslensku og/eða ensku kunnátta
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sjálfstæð vinnubrögð

Við bjóðum:

  • Aðgang að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur frábær orlofshús um allt land.
  • Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira.
  • Nýjan og vel útbúin flutningabíl

Í anda jafnréttisstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anton Oddsson, þjónustustjóri, anto@eimskip.com.

Umsóknarfrestur er til og með 16. september 2026

Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.

Skills

  • CE Driving Licence
  • Professional driving
  • Loading and Unloading
  • Customer Service
  • forklift operation
  • ADR certification
  • Route Planning

Related jobs

EimskipApply for this job