JobConnect

Leikskólakennari

Leikskólinn Ársalir óskar eftir að ráða leikskólakennara. Ef ekki berst umsókn frá einstaklingi sem uppfyllir menntunarkröfur verður skoðað að ráða leiðbeinanda. Um 100% framtíðarstarf er að ræða, möguleiki er þó á hlutastarfi (50%). Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Fríðindi í starfi:

  • Frí yfir jól og áramót og 5 vikur yfir sumartímann (leikskólinn verður lokaður).
  • Stytting vinnuvikunnar - 36 stunda vinnuvika m.v. fullt starf (dögum er safnað upp og teknir út á lokunar- og skráningardögum leikskólans og skv. samkomulagi).
  • Frítt fæði á vinnutíma.
  • Dagleg útivera.
  • Undirbúningstími fyrir leikskólaliða og ófaglærða sem starfað hafa í þrjú ár eða lengur.
  • Heilsueflingarstyrkur eftir sex mánuði í starfi.
  • Farsímaáskrift (Sýn) eftir sex mánuði í starfi.
  • Stuðningur við starfsfólk sem stunda nám í leikskólakennarafræðum.

Leikskólinn Ársalir er 11 deilda leikskóli með starfsstöðvar á tveimur stöðum á Sauðárkróki. Í leikskólanum eru tæplega 200 börn og þar starfa um 65 manns, sem eiga það sameiginlegt að hafa gaman af vinnu með börnum. Einkunnarrorð leikskólans eru: Vinátta - Virðing - Vellíðan. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðunni www.arsalir.leikskolinn.is.

Helstu verkefni eru:

  • Vinna að uppeldi og menntun barna.
  • Fylgjast vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Taka þátt í gerð skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Vinna í nánu samstarfsi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Sitja fundi sem haldnir eru á vegum leikskólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaranám og leyfisbréf til kennslu.
  • Óskað er eftir jákvæðum, sjálfstæðum, ábyrgum og sveigjanlegum einstaklingum.
  • Afar mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði í starfi og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt starf með börnum.
  • Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að leita og nýta tækifærin sem gefast við mótun skólans með skólaþróun að leiðarljósi.
  • Reynsla af starfi í leikskóla er kostur.
  • Umsækjandi þarf að geta átt samskipti á íslensku við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.
  • Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér áherslur skólans og séu tilbúnir að vinna eftir þeim.
  • Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla.

Leikskólakennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, skólastefnu sveitarfélagsins sem og öðrum stefnum sveitarfélagsins sem í gildi eru á hverjum tíma og við eiga.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um störfin eru veittar með því að senda póst á netfangið arsalir@skagafjordur.is.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Prófskírteini, leyfisbréf og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að lokinni ráðningu.

Skills

  • Early Childhood Education
  • Child Development
  • Curriculum Planning
  • Classroom Management
  • First aid
  • Communication
  • Teamwork

Related jobs

Sveitarfélagið SkagafjörðurApply for this job