JobConnect

Rekstrarstjóri ferða

  • Icelandia
  • Iceland
  • ISK 8,400,000 – ISK 10,800,000

Icelandia leitar að öflugum og tæknilega sterkum stjórnanda í fjölbreytt hlutverk rekstrarstjóra á ferðasviði fyrirtækisins.

Rekstrarstjóri ferða er yfirmaður leiðsögumanna og ber ábyrgð á skilvirkum rekstri ferða frá degi til dags. Hlutverkið snýst um að veita leiðsögumönnum faglega forystu, þjálfun og eftirfylgni, manna vaktir í samstarfi við vaktstjórn og að leiða umbætur á ferlum, meðal annars með innleiðingu sjálfvirkni- og tæknilausna. Rekstrarstjóri tekur einnig þátt í að þróa ferðir með upplifun gesta að leiðarljósi og vinnur þvert á deildir að stöðugum umbótum í rekstri og þjónustu.

Við leitum að árangursdrifnum og metnaðarfullum einstaklingi með sterka leiðtogahæfni og reynslu af mannaforráði sem hefur gaman af því að byggja upp teymi, bæta ferla og sjá árangur í verki.

Starfsstöð er á BSÍ og hlutverkið heyrir undir deildarstjóra stjórnstöðvar BSÍ.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirmaður leiðsögumanna sinnir faglegri forystu, þjálfun og eftirfylgni með störfum.
  • Ber ábyrgð á daglegri skráningu og samþykkt tíma í tímaskráningarkerfi og vaktaplani.
  • Samþykkir laun og reikninga verktaka.
  • Mannar vaktir í samstarfi við vaktstjórn, með hagkvæmni að leiðarljósi ásamt því að leysa af í vaktstjórn þegar þannig ber undir.
  • Þróar og endurskoðar þjálfunaráætlanir og tryggir faglega móttöku nýliða.
  • Leiðir umbætur á ferlum og tekur þátt í innleiðingu sjálfvirkni- og tæknilausna.
  • Vinnur markvisst að umbótum, þróun og bestun rekstrar, ferla og þjónustu.
  • Vinnur úr starfsánægjukönnunum og endurgjöf viðskiptavina.
  • Tekur þátt í að skapa og þróa ferðir með upplifun gesta að leiðarljósi.
  • Starfar með öðrum deildum og tekur þátt í ráðningum í samráði við yfirmann.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af leiðsögn og/eða menntun sem nýtist í starfi er mikill kostur.
  • Reynsla af stjórnunarstörfum og mannaforráði.
  • Mjög góð tæknihæfni og rík geta til að tileinka sér ný kerfi og tæknilausnir. Reynsla af innleiðingu tæknilausna í sambærilegu starfi er mikill kostur.
  • Íslenskukunnátta og góð enskukunnátta í ræðu og riti eru skilyrði.
  • Þekking á tímaskráningar- og vaktakerfum er kostur.
  • Leiðtogahæfni, öguð og sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, lipur og lausnamiðuð vinnubrögð í annasömu umhverfi.

Í kynningarbréfi hvetjum við umsækjendur til að segja stuttlega frá menntun sinni, starfsreynslu og áhuga á starfinu. Jafnframt óskum við eftir lýsingu á aðstæðum þar sem þurfti að leysa úr mönnunarvanda eða bregðast við óvæntu atviki með skömmum fyrirvara, og hvernig umsækjandi nálgaðist það verkefni.

Af hverju Icelandia?

Hjá Icelandia verður þú hluti af teymi sem leggur metnað sinn í að sýna gestum sínum fegurð Íslands. Við bjóðum upp á líflegt vinnuumhverfi og möguleika á að hafa raunveruleg áhrif á upplifun gesta.

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við starf@icelandia.is

Skills

  • Team Leadership
  • Staff Scheduling
  • Time Tracking Systems
  • Training Program Development
  • Process Improvement
  • Vendor Management
  • Operations Management

Related jobs

IcelandiaApply for this job