JobConnect

Umsjónarkennari

Í Naustaskóla er laus staða umsjónarkennara í teymi 4. – 5. Bekkjar.

Ráðið er í stöðuna frá 1. október eða eftir samkomulagi. Um 100% ótímabundna stöðu er að ræða. Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum kennara til að ganga til liðs við öflugt kennarateymi 4. – 5. bekkjar.

Í Naustaskóla er er lögð áhersla á jákvæðan aga, teymiskennslu, námsaðlögun og faglegt samstarf. Kennarar kenna saman á opnum svæðum og skapa saman lærdómssamfélag með sérstakri áherslu á að koma til móts við hvern og einn nemanda.

Einkunnarorð Naustaskóla eru „Námsaðlögun – Athvarf – Umhyggja – Samvinna – Táp og fjör – Allir með!“

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.naustaskoli.is

Í Naustaskóla er teymiskennsla og eru allir kennarar hluti af kennarateymi, sinna kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við kennarar teymisins og aðra starfsmenn skólans og bera ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.

Starfið felur í sér:

  • Skipulagning og framkvæmd kennslu í samstarfi við teymisfélaga
  • Einstaklingsmiðuð kennsla og námsmat
  • Þátttaka í þróunarstarfi og teymisvinnu
  • Virk þátttaka í faglegu samstarfi innan skólans
  • Samskipti og samstarf við foreldra
  • Umsjón með nemendahópi

Menntunarkröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Framhaldsmenntun er æskileg

Hæfniskröfur:

  • Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda
  • Reynsla af teymiskennslu æskileg
  • Þekking og/eða vilji til að starfa eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði og samstarfsvilji
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi
  • Áhugi á þróunarstarfi
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
  • Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, kennslureynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi kennara. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda og sýn hans á kennarastarfið og hvernig hann sér starf sitt sem kennara geta þróast.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Allar nánari upplýsingar veitir Bryndís Björnsdóttir skólastjóri (sími 460-4101, netfang dis@akmennt.is)

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2026.

Skills

  • Teaching
  • Classroom Management
  • Lesson Planning
  • Differentiated Instruction
  • Team Teaching
  • Student Assessment
  • Parent Communication

Related jobs

AkureyrarbærApply for this job