JobConnect

Nettó Höfn í Hornafirði leitar að starfsfólki í tvö störf við áfyllingu kvöld/nætur

Nettó Höfn í Hornafirði leitar að starfsfólki í tvö störf við áfyllingu kvöld/nætur. Um er að ræða starf þar sem vinnutími er að jafnaði frá kl. 20:00–04:00, sex daga vikunnar. Starfið felst fyrst og fremst í áfyllingu og frágangi á vörum að kvöldi og nóttu. Stærstur hluti vinnutímans er eftir lokun verslunar en hluti vaktar getur verið á opnunartíma.

Starfið hentar vel einstaklingi sem er sjálfstæður, skipulagður og vinnur rösklega. Mikilvægt er að geta unnið eftir skipulagi vinnustaðar, forgangsraðað verkefnum og sýnt frumkvæði.

Helstu verkefni:

  • Áfylling og frágangur á vörum

  • Framstilling og tiltekt í verslun

  • Móttaka og frágangur vöru eftir þörfum

  • Aðstoð við viðskiptavini á opnunartíma

  • Önnur tilfallandi verkefni í verslun

Hæfniskröfur:

  • Sjálfstæði og ábyrgð í starfi

  • Skipulögð og vönduð vinnubrögð.

  • Dugnaður og geta til að vinna rösklega.

  • Frumkvæði og geta til að forgangsraða verkefnum.

  • Góð enskukunnátta

Greitt eftir kjarasamningi VR

Fyrirtækið útvegar ekki húsnæði né aðstoðar við leit að húsnæði

Samkaup hefur hlotið Menntasprota atvinnulífsins, Hvatningarverðlaun jafnréttismála og auk þess hlotið jafnlaunavottun Jafnréttisstofu.

Samkaup rekur 62 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Prís, SPAR, Krambúðin og 10-11. Hjá félaginu starfa um 1400 starfsmenn í um 650 stöðugildum.

Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinist einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! og er stefna sem er unnið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.

Skills

  • Stock replenishment
  • Inventory Management
  • Merchandising
  • Customer Service
  • Attention to Detail
  • Time Management
  • English Communication

Related jobs

Samkaup hf.Apply for this job