Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
- Reykjavik University
- Iceland
- ISK 7,000,000 – ISK 9,000,000
Háskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða öflugan og drífandi sérfræðing til starfa í teymi rannsóknaþjónustu HR. Viðkomandi verður í lykilhlutverki í að styðja við rannsakendur skólans á sviði styrkjaöflunar. Starfið felur í sér að mynda og viðhalda tengslum við rannsakendur innan HR og hagaðila utan háskólans, greina viðeigandi styrktækifæri og tengja þau saman á markvissan hátt. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, sjálfstæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
Rannsóknaþjónustan er samhentur hópur sérfræðinga sem leggur áherslu á fagmennsku, samvinnu og þekkingarmiðlun. Við leggjum áherslu á opið starfsumhverfi, stöðuga fagþróun og að starfsfólk hafi töluvert svigrúm til að móta eigin verkefni. Starfsmaður heyrir undir forstöðumann rannsóknaþjónustu HR og vinnur starf sitt í samstarfi og samráði við hann.
STARFSSVIÐ
- Byggja upp og rækta tengsl við rannsakendur og innri og ytri hagaðila
- Auðkenna og greina styrktækifæri fyrir rannsakendur HR
- Tengja rannsakendur við viðeigandi styrkjaköll frá innlendum og erlendum styrkveitendum
- Veita ráðgjöf og stuðning við undirbúning umsókna (e. pre-award) og eftirfylgni styrktra verkefna (e. post-award)
- Taka þátt í innleiðingu stafrænna lausna og þróun verkferla innan þjónustunnar
- Taka virkan þátt í starfi rannsóknaþjónustunnar og samstarfi hennar við aðrar einingar háskólans
HÆFNISKRÖFUR
- Háskólamenntun á meistarastigi og reynsla af rannsóknum sem nýtist í starfinu
- Víðtæk þekking á innlendu og alþjóðlegu rannsóknastarfi, s.s. reynsla af undirbúningi samkeppnishæfra styrkumsókna, gerð fjárhagsáætlana, utanumhaldi rannsóknaverkefna, skýrslugerð og úttektum
- Mjög góð skipulagshæfni, nákvæmni og geta til að stýra mörgum verkefnum samtímis
- Framúrskarandi samskiptahæfni á íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
- Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í samstarfi við akademískt starfsfólk og starfsfólk annarra stoðsviða
VIÐ BJÓÐUM UPP Á
Krefjandi, gefandi og sjálfstætt starf í alþjóðlegu háskólaumhverfi. Fjölbreytt verkefni, mikil samskipti við samstarfsfólk þvert á háskólann og ytri hagaðila, og tækifæri til að hafa bein áhrif á styrkjaöflun og rannsóknaárangur HR.
Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Með öllum umsóknum skal fylgja ferilskrá. Einnig er beðið um kynningarbréf þar sem umsækjendur rökstyðja ástæður þess að vera rétta manneskjan í starfið. Gott væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 27. september en umsóknir verða metnar jafnóðum og þær berast.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir, forstöðumaður rannsóknaþjónustu, (sigridurg@ru.is), eða mannauður, (mannaudur@ru.is). Umsóknum skal skilað á umsóknarvef HR. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Háskólinn í Reykjavík hefur haslað sér völl sem öflugur rannsóknarháskóli á alþjóðavísu. Háskólinn stenst samanburð við erlenda háskóla í fremstu röð og fræðafólk skólans hefur náð framúrskarandi árangri. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu.
HR er eftirsóknarverður vinnustaður og þar er lögð áhersla á fyrsta flokks aðstöðu í nærandi umhverfi, persónuleg samskipti, framsæknar kennsluaðferðir og nútímalega starfshætti. HR fagnar fjölbreytileika og mikið er lagt upp úr jafnrétti og virðingu fyrir einstaklingum og störfum þeirra. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3.700 í sjö deildum og starfsfólk er um 330 talsins, auk 350 stundakennara.
Skills
- Grant writing
- Research Administration
- Stakeholder Management
- Project Management
- Proposal Development
- Compliance
- Communication







