Sjóðstjóri hlutabréfasjóða
- Íslandsbanki
- Kópavogur, Iceland
- ISK 18,000,000 – ISK 25,000,000
Íslandssjóðir leita að öflugum og metnaðarfullum sjóðstjóra til að stýra hlutabréfasjóðum félagsins.
Íslandssjóðir eru leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki landsins og bjóða fjölbreytt úrval verðbréfasjóða og sérhæfðra fjárfestingalausna fyrir einstaklinga, fyrirtæki og fagfjárfesta. Hjá félaginu starfar öflugur hópur sérfræðinga með víðtæka reynslu af fjármálamörkuðum og eignastýringu, þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, agað fjárfestingarferli og ábyrgar fjárfestingar.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með sterka greiningarhæfni, góða þekkingu á fjármálamörkuðum og brennandi áhuga á fjárfestingum. Æskilegt er að viðkomandi sé framtakssamur og söludrifinn, hafi gott lag á samskiptum og geti tekið virkan þátt í að þróa og efla viðskiptasambönd félagsins. Starfið býður upp á krefjandi og fjölbreytt verkefni í öflugu starfsumhverfi þar sem árangur, samstarf og fagleg framþróun eru í fyrirrúmi.
Helstu verkefni
- Greining markaða, fyrirtækja og fjárfestingarkosta á innlendum hlutabréfamarkaði.
- Mat á fjárfestingatækifærum og fjárfestingaákvarðanir.
- Samskipti við samstarfsaðila og viðskiptavini.
- Áframhaldandi þróun á vörum og þjónustu.
- Önnur verkefni samkvæmt nánara samkomulagi.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla og góð þekking á fjármálamörkuðum, fjárfestingum og verðbréfum.
- Sterk greiningarhæfni til að taka upplýstar ákvarðanir.
- Sjálfstæð, öguð og fagleg vinnubrögð.
- Frumkvæði, metnaður og drifkraftur.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
- Verðbréfaréttindi eru æskileg.
Við bjóðum
- Krefjandi og áhrifamikið starf hjá leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki.
- Tækifæri til að starfa með öflugu teymi sérfræðinga.
- Metnaðarfullt og faglegt starfsumhverfi sem styður við frumkvæði og þróun.
- Tækifæri til faglegs vaxtar og þróunar.
Ferkari upplýsingar:
Frekari upplýsingar veita Halldóra Skúladóttir, framkvæmdastjóri Íslandssjóða (halldora@islandssjodir.is) og Guðlaugur Örn Hauksson, ráðningarstjóri (gudlaugurh@islandsbanki.is).
Hjá Íslandssjóðum starfa um 20 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.
Íslandssjóðir stýra 23 sjóðum fyrir almenna fjárfesta og 8 sérhæfðum sjóðum. Íslandssjóðir stýra eignum sem nema um 387 milljörðum króna og um 12.000 sparifjáreigendur og fjárfestar hafa valið að ávaxta eignir sínar í sjóðum í rekstri Íslandssjóða.
Skills
- Equity Research
- Portfolio Management
- Financial Analysis
- Investment Strategy
- Risk Management
- Client Relationship Management
- Icelandic Securities Market





