JobConnect

Sérfræðingur í áhættustýringu - tímabundið starf

  • Íslandsbanki
  • Kópavogur, Iceland
  • ISK 8,500,000 – ISK 11,000,000

Rekstraráhætta og viðnámsþróttur leitar að metnaðarfullum einstaklingi í tímabundið starf í eitt ár sem sérfræðingur í áhættustýringu.

Helstu verkefni:

  • Þróa og sjálfvirknivæða lausnir fyrir eftirlit, gagnasöfnun, mælaborð og skýrslugjöf.
  • Styðja við eftirlit áhættustýringar og hlítni bankans við lög og ytri kröfur.
  • Þróa verkfæri sem styðja við umsýslu og eftirfylgni með áhættumötum.
  • Styðja við úttektir og prófanir á öryggisvörnum, öryggisvöktun og viðbrögðum við öryggistengdum atburðum.
  • Nýta gervigreind til að þróa og byggja áhættu- og öryggissjónarmið inn í lausnir.

Hæfniskröfur:

  • Frumkvæði og drifkraftur.
  • Reynsla af forritun.
  • Hefur áhuga á gervigreind og að tileinka sér ný verkfæri.
  • Þekkir gagnagrunna, Microsoft Power Apps og Power Automate.
  • Nákvæmni í vinnubrögðum.
  • Lausnamiðuð og gagnrýnin hugsun.

Nánari upplýsingar:

Frekari upplýsingar um starfið veita Stefán Þór Björnsson, forstöðumaður Rekstraráhættu og viðnámsþróttar og öryggisstjóri, og Guðlaugur Örn Hauksson, ráðningastjóri.

Hjá Íslandsbanka starfa um 700 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.

Skills

  • Risk Management
  • Programming
  • Artificial Intelligence
  • Database Management
  • Microsoft Power Apps
  • Power Automate
  • Data Analysis

Related jobs

ÍslandsbankiApply for this job