JobConnect

Sérfræðingur í þróun gagnavöruhúss

Starfið er innan deildar þróunar og gagnahögunar á sviði upplýsingatækni sem ber ábyrgð á þróun og rekstri tölvukerfa og gagnaumhverfis bankans. Þar starfar öflugt teymi sérfræðinga í gagnasamþættingu, hugbúnaðarþróun og DevOps. Áhersla er lögð á stöðugar umbætur, trausta innviði, góða gagnastjórnun og faglegt samstarf við hagaðila.

Verið er að þróa nýtt gagnavöruhús sem sameinar gögn úr lykilkerfum bankans og styður við greiningar, eftirlit, gagnaskil og upplýsta ákvarðanatöku. Viðkomandi mun taka þátt í hönnun og þróun gagnainnviða, gagnaflæðis og gagnalíkana með áherslu á áreiðanlega gagnavinnslu. Í starfinu felast einnig tækifæri til að kanna og þróa leiðir til að hagnýta vélnám og gervigreind í uppbyggingu gagnavöruhússins, meðal annars í útgáfuferlum, gæðaprófunum, sjálfvirkni og annarri gagnavinnslu.

Mikilvægast er að viðkomandi hafi sterkan tæknilegan grunn, reynslu af þróun gagnalausna, skilning á fjármálamarkaði og metnað til að byggja upp vandaðar og áreiðanlegar gagnavöruhúsalausnir.

Helstu verkefni

  • Hönnun og þróun gagnavöruhúss
  • Þróun gagnaflæðis og gagnasamþætting
  • Gagnalíkanagerð og uppbygging gagnaferla
  • Tryggja gæði og áreiðanleika gagna
  • Samstarf við greiningar- og þróunarteymi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi, t.d. á sviði hugbúnaðarverkfræði, tölvunarfræði eða gagnavísinda.
  • Góð þekking og reynsla af SQL, gagnagrunnum, gagnalíkanagerð, gagnavöruhúsum og vinnslu stórra gagnasafna.
  • Þekking og reynsla af gagnavinnsluferlum (ETL/ELT)
  • Reynsla af því að leiða eða bera verulega tæknilega ábyrgð á þróun gagnalausna frá hugmynd og hönnun til innleiðingar og notkunar.
  • Þekking og reynsla af þróun, mati og hagnýtingu vélnámslíkana.
  • Reynsla af vinnslu og greiningu færslugagna eða annarra fjármálagagna og þróun lausna sem styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku.
  • Þekking og reynsla af persónuvernd, öruggri meðhöndlun viðkvæmra gagna og þróun öruggra gagnavinnsluferla.
  • Reynsla af samstarfi þvert á teymi og deildir, mótun lausna út frá þörfum notenda og miðlun niðurstaðna til hagaðila og stjórnenda.
  • Áræðni, heiðarleiki og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Góð samskipta- og teymisfærni og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.

Frekari upplýsingar um starfið veita Elín Rut Guðnadóttir, forstöðumaður þróunar og gagnahögunar, Elin.Rut.Gudnadottir@sedlabanki.is og Árni Ragnar Stefánsson, mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar, mannaudur@sedlabanki.is. Umsóknarfrestur er til og með 21. september nk.

Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Skills

  • SQL
  • Data Modeling
  • Data Warehousing
  • ETL
  • Data Integration
  • DevOps
  • Machine Learning

Related jobs

Seðlabanki ÍslandsApply for this job