Vaktstjóri (hlutastarf)
- Krónan
- Iceland
- ISK 3,500,000 – ISK 4,500,000
Krónan leitar að öflugum aðila til að gegna hlutverki vaktstjóra í Krónunni Lindum. Verkefni vaktstjóra eru að aðstoða og styðja við verslunarstjóra og stuðla að hvatningu meðal starfsfólks til að ná settum markmiðum.
Starfið er hlutastarf og er vinnutíminn: Önnur hver helgi 14:00-22:00 laugaradaga og sunnudaga. Mikilvægt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Efla hópinn í að búa til góða upplifun fyrir viðskiptavini
- Daglegt skipulag til að fylgja eftir verkferlum og gæðum
- Vaktaplön og þjálfun
- Verkstýring starfsfólks
- Ábyrgð og umsjón með fjármunum
- Almenn verslunarstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Starfsreynsla af matvörumarkaði
- Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
- Aldurstakmark er 18 ára
- Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
Fríðindi í starfi
- Styrkur til heilsueflingar
- Afsláttarkjör hjá Krónunni, N1, ELKO og Lyfju
- Aðgangur að Velferðarþjónustu Krónunnar
Krónan býður upp á fjölbreyttan og metnaðarfullan vinnustað þar sem hægt er að hafa áhrif og leiða verkefni með sýnilegum árangri.
Hjá Krónunni starfa um eitt þúsund og tvöhundruð manns, við eigum ánægðustu viðskiptavinina 9. árið í röð og erum með jafnlaunavottun.
Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2026.
Skills
- Retail Operations
- Team Leadership
- Customer Service
- Scheduling
- Staff Training
- Cash Handling
- Icelandic




