Stuðningsfulltrúi
- Reykjavíkurborg
- Reykjavík, Iceland
- ISK 4,200,000 – ISK 4,800,000
Stuðningsfulltrúi óskast til starfa í Breiðholtsskóla í 70-100% starf.
Starfsfólk vinnur saman í teymum, tekur virkan þátt í þróun skólastarfsins og starfsandi er góður. Mikil áhersla er lögð á læsi í víðum skilningi, félagsfærni og sjálfseflingu nemenda. Breiðholtsskóli státar af fjölmenningarlegu samfélagi bæði nemenda og starfsmanna en rúmlega 60% nemenda hafa annað móðurmál en íslensku.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði, er sjálfstæður í vinnubrögðum og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi, frímínútum og vettvangsferðum.
- Aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámsskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra stoðþjónustu.
- Að auka færni og sjálfstæði nemenda félagslega, í námi og í athöfnum daglegs lífs.
- Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Hæfniskröfur:
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði.
- Nákvæmni og fagmennska í vinnubrögðum.
- Íslenskukunnátta á stigi B2samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi:
- Menningarkort – bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
- Heilsuræktarstyrkur
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Nánari upplýsingar veitir Ásta Bjarney Elíasdóttir, skólastjóri Breiðholtsskóla. Sími 4117450, netfang asta.bjarney.eliasdottir@reykjavik.is.
Skills
- student support
- special education
- Icelandic (B2)
- Behavior Management
- individualized education plans
- Team Collaboration
- Child Development


