JobConnect

Special Education Teacher

Bjartahlíð er sex deilda leikskóli sem starfar í tveimur húsum í Hlíðahverfi. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Reggio Emilia og leggur mikla áherslu á sköpun, gleði og samvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að annast sérkennslu og stuðning við börn með fjölbreyttar þarfir.
  • Að skipuleggja og sinna markvissri þjálfun í samræmi við þarfir barns eftir leiðsögn sérkennslustjóra
  • Að stuðla að virkri þátttöku, félagslegri aðlögun og vellíðan barna í barnahópnum.
  • Að eiga gott samstarf við foreldra, deildarstjóra, sérkennslustjóra og annað starfsfólk leikskólans.
  • Að taka virkan þátt í þróun faglegs starfs leikskólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, sálfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sérkennslu er æskileg.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum er æskileg.
  • Þekking á fjölbreyttum stuðnings- og kennsluaðferðum er kostur.
  • Góð færni í samskiptum og samstarfi.
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðhorf og áhugi á faglegri þróun.
  • Góð íslenskukunnátta. B2 samkvæmt íslenska tungumálarammanum -Self-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP)
  • Hreint sakarvottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir menntun, starfsreynslu og ástæðu umsóknar.

Fríðindi í starfi

  • Reykjavíkurkort (sund og menning).
  • Árlegur heilsustyrkur eftir 6 mánuði í starfi.
  • Samgöngusamningur.
  • Vinnutímasamningur út frá leiðum Betri vinnutíma og nýrrar Reykjavíkurleiðar í leikskólum.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna Ögmundsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 411 3600 eða með tölvupósti á johanna.ogmundsdottir@reykjavik.is.

Umsóknarfrestur er til og með 29.sept 2026

Við hvetjum áhugasama til að sækja um og hlökkum til að fá nýjan og öflugan liðsmann í hópinn okkar.

Skills

  • special education
  • Icelandic Language
  • Child Development
  • individualized education plans
  • Behavior Management
  • Parent Communication
  • Collaboration

Related jobs

ReykjavíkurborgApply for this job