JobConnect

Special Education Teacher / Behavior Analyst

Atferlisfræðingur, leikskólasérkennari, starfsmaður með B.Sc. í sálfræði eða aðra sambærilega menntun, óskast til starfa í leikskólanum Ægisborg í Vesturbæ Reykjavíkur. Ægisborg er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á að skapa hlýlegt lærdómssamfélag barna og fullorðinna. Helstu áherslur starfsins hnitast í kringum leik, læsi, hreyfingu og sjálfseflingu og eru kjörorð leikskólans virðing, gleði og umhyggja.

Námskrá Ægisborgar og einhverjar viðbótarupplýsingar má nálgast á netinu: https://reykjavik.is/aegisborg

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að veita barni með sérþarfir stuðning og leiðsögn.
  • Samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
  • Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
  • Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu og öðrum störfum innan leikskólans sem yfirmaður felur honum.

Hæfniskröfur

  • Master í hagnýtri atferlisgreiningu, leikskólasérkennaramenntun, B.Sc í sálfræði eða önnur sambærileg menntun. Reynsla af sérkennslu æskileg.
  • Lipurð í samskiptum og sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
  • Hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags.

Starfshlutfall 100% eða eftir samkomulagi

Umsóknarfrestur 23. 09. 2026

Ráðningarform: Timabundin ráðning

Nánari upplýsingar um starfið veita:

Ásmundur K. Örnólfsson leikskólastjóri í síma 6982108 og tölvupósti asmundur.kristberg.ornolfsson@reykjavik.is

Sólveig Halldórsdóttir sérkennslustjóri Ægisborgar í síma 8941276 eða með tölvupósti solveig.halldorsdottir@reykjavik.is.

Skills

  • special education
  • Applied Behavior Analysis
  • Psychology
  • Individualized Education Programs
  • Parent Communication
  • Collaboration
  • Icelandic Language

Related jobs

ReykjavíkurborgApply for this job