Aðstoðarforstöðumaður í frístundaheimilinu Bakkaseli
- Reykjavíkurborg
- Iceland
- ISK 7,200,000 – ISK 8,400,000
Skrifstofa frístundamála leitar að aðstoðarforstöðumanneskju í 100% starf í frístundaheimilið Bakkasel við Breiðholtsskóla. Um tímabundið starf er að ræða með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Frístundaheimilin veita 6–9 ára börnum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frístundastarfs SFS og Menntastefnu Reykjavíkurborgar eru höfð að leiðarljósi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsjón með daglegri starfsemi frístundaheimilisins í samvinnu við forstöðumann.
- Skipulagning frístundastarfsins í samráði við börn og starfsfólk.
- Leiðbeina og taka þátt í leik og starfi með börnum.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
- Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn.
- Að veita starfsmönnum leiðsögn um framkvæmd vinnunnar og stuðla að lýðræðislegum starfsháttum og góðum starfsanda.
- Er staðgengill forstöðumannns.
Hæfniskröfur:
- Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
- Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Reynsla af félags- og tómstundastarfi.
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfileikar og fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfinu.
- Almenn tölvu- og samskiptamiðla kunnátta.
- Góð íslenskukunnátta í máli og riti, C1
- Góð enskukunnátta.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá.
Um tímabundna ráðningu er að ræða og þarf viðkomandi að hefja störf sem fyrst.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis, stéttarfélags í almannaþjónustu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Kristrún Lilja Daðadóttir
Skills
- Leisure and youth work
- Program Planning
- Child Development
- Team Leadership
- Parent Communication
- School collaboration
- Icelandic Language


