JobConnect

Þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi

Naustaskóli leitar að metnaðarfullum þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa í 70 - 100% stöðu til að taka þátt í fjölbreyttu og skapandi skólastarfi. Þroskaþjálfinn eða iðjuþjálfinn mun starfa í teymi fagfólks að því að efla þroska og vellíðan nemenda með sérþarfir. Um ótímabundna ráðningu er að ræða og ráðið er frá 1. október eða eftir samkomulagi.

Í Naustaskóla er er lögð áhersla á jákvæðan aga, teymiskennslu, námsaðlögun og faglegt samstarf. Kennarar kenna saman á opnum svæðum og skapa saman lærdómssamfélag með sérstakri áherslu á að koma til móts við hvern og einn nemanda.

Einkunnarorð Naustaskóla eru „Námsaðlögun – Athvarf – Umhyggja – Samvinna – Táp og fjör – Allir með!“

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.naustaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipulagning og framkvæmd þjálfunar fyrir nemendur með sérþarfir
  • Gerð einstaklingsáætlana í samráði við foreldra og fagteymi
  • Ráðgjöf til starfsfólks og foreldra varðandi þjálfun og námsleiðir
  • Mat á framförum og skráning á árangri
  • Samstarf við aðra fagaðila innan og utan skólans

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi
  • Reynsla af starfi með börnum æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Sveigjanleiki og aðlögunarhæfni
  • Áhugi á þverfaglegu samstarfi
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
  • Góð tölvukunnátta

Áhugasamir umsækjendur eru hvattir til að senda umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og þroskaþjálfafélags Íslands eða Iðjuþjálfafélag Íslands.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Allar nánari upplýsingar veitir Bryndís Björnsdóttir skólastjóri í síma 460-4101 eða 865-3700 eða í netfangi dis@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 29. september 2026.

Skills

  • special education
  • Individualized Education Plans (IEP)
  • Behavior Management
  • Assessment
  • Collaboration
  • Icelandic
  • Documentation

Related jobs

AkureyrarbærApply for this job