JobConnect

Fulltrúi á háskólaskrifstofu - tímabundin staða

Háskólinn í Reykjavík leitar eftir að ráða fulltrúa í 100% starf, tímabundið til mars 2027. Starfið heyrir undir háskólaskrifstofu HR. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem verkefnin geta verið af ýmsum toga. Starfið hentar vel ný útskrifuðum. Gott væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

STARFSSVIÐ

  • Aðstoð og utanumhald um dagatal og tölvupósta fyrir rektor háskólans
  • Aðstoð og eftirfylgni með verkefnum rektors og stjórnenda
  • Umsjón og samþætting verkefna, funda , viðburða og ferða fyrir rektor og aðra stjórnendur
  • Samstarf við starfsfólk deilda og stoðdeildir háskólans
  • Ýmis tilfallandi verkefni

HÆFNISKRÖFUR

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að halda utan um mörg verkefni á sama tíma
  • Lausnamiðuð hugsun og rík þjónustulund
  • Frumkvæði og fagmennska í vinnubrögðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta jafnt í töluðu sem rituðu máli

Með öllum umsóknum skal fylgja ferilskrá, valkvætt er að láta kynningarbréf fylgja með.

Umsóknarfrestur er opin þar til hæfur umsækjandi hefur verið ráðinn.

Nánari upplýsingar veitir Ólöf Vígdís Ragnarsdóttir ( olofr@ru.is), skrifstofustjóri háskólaskrifstofu og mannauðsdeild ( mannaudur@ru.is). Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Háskólinn í Reykjavík hefur haslað sér völl sem öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðavísu. Háskólinn stenst samanburð við erlenda háskóla í fremstu röð og fræðafólk skólans hefur náð framúrskarandi árangri. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu.

HR er eftirsóknarverður vinnustaður og þar er lögð áhersla á fyrsta flokks aðstöðu í nærandi umhverfi, persónuleg samskipti, framsæknar kennsluaðferðir og nútímalega starfshætti. HR fagnar fjölbreytileika og mikið er lagt upp úr jafnrétti og virðingu fyrir einstaklingum og störfum þeirra. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3.600 í sjö deildum og starfsfólk er um 330 talsins, auk 350 stundakennara.

Skills

  • Calendar Management
  • Email Management
  • Project Coordination
  • Event Planning
  • Travel Arrangements
  • Icelandic
  • English

Related jobs

Reykjavik UniversityApply for this job