JobConnect

Ráðgjafi einstaklinga - Hafnarfjörður

Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi til liðs við frábæran hóp í útibúi Íslandsbanka í Hafnarfirði. Ef þú hefur áhuga á fjármálum, nýtur þess að eiga samskipti við fólk og vilt hjálpa viðskiptavinum að taka góðar fjárhagslegar ákvarðanir, þá gæti þetta starf verið fyrir þig. Við leitum að einstaklingi sem sýnir frumkvæði, metnað og hefur ríka þjónustulund.

Helstu verkefni

  • Ráðgjöf um fjármál einstaklinga
  • Að veita framúrskarandi þjónustu og skapa jákvæða upplifun viðskiptavina
  • Sala og kynning á vörum og þjónustu bankans
  • Önnur verkefni eftir nánara samkomulagi

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun kostur en ekki skilyrði
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Þjónustulipurð og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Góð tölvukunnátta og skipulagshæfni

Frekari upplýsingar

Frekari upplýsingar veita Hanna Dóra Jóhannesdóttir útibússtjóri (hanna.johannesdottir@islandsbanki.is) og Guðlaugur Örn Hauksson, ráðningarstjóri, (gudlaugurh@islandsbanki.is).

Hjá Íslandsbanka starfa um 700 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.

Skills

  • Customer Service
  • Financial Advisory
  • Sales
  • Communication
  • computer literacy
  • Organizational Skills
  • Initiative

Related jobs

ÍslandsbankiApply for this job