JobConnect

Veitingastjóri - F&B Manager

F&B Manager ber heildarábyrgð á rekstri, afkomu og daglegri stjórnun veitingadeildar hótelsins, þar á meðal veitingastaðar, bars, viðburða- og veisluþjónustu og eldhúss. Markmið starfsins er að tryggja arðbæran og skilvirkan rekstur, framúrskarandi þjónustu og upplifun gesta, ásamt skilvirkri nýtingu rekstrarþátta.

Starfssvið:

  • Ber ábyrgð á rekstrarafkomu veitingadeildar, fjárhagsáætlun, tekjum og framlegð.
  • Veitir skýra og hvetjandi forystu og leiðir, þróar og þjálfar teymið.
  • Ber ábyrgð á mönnun, vaktaskipulagi og framleiðni í samræmi við eftirspurn og rekstrarþörf.
  • Fylgist með hráefnis- og launakostnaði, birgðum og sóun í samstarfi við yfirmatreiðslumann.
  • Vinnur markvisst að hagræðingu, aukinni sölu og bættri nýtingu rekstrarþátta.
  • Tryggir framúrskarandi þjónustu, gæði, matvælaöryggi og jákvæða upplifun gesta.
  • Vinnur náið með hótelstjóra og öðrum stjórnendum að rekstri, sölu og þróun hótelsins.
  • Fylgist með lykilmælikvörðum, greinir frávik og hrindir í framkvæmd úrbótum.
  • Sinna öðrum verkefnum sem starfið krefst.

Hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði framreiðslu eða matreiðslu sem og menntun á sviði rekstrar og/eða sambærileg menntun/reynsla.
  • Reynsla af stjórnun veitingadeildar, þar með talið veislu- og viðburðaþjónustu.
  • Sterk rekstrar- og fjármálavitund og reynsla af áætlanagerð, kostnaðarstýringu og greiningu.
  • Framúrskarandi leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun fjölmenns teymis.
  • Skipulagshæfni og geta til að vinna í hröðu og krefjandi starfsumhverfi.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Mjög góð íslensku og enskukunnátta.

Umsóknarfrestur er til og með 27. september nk. Fyrirspurnum vegna starfsins má beina til Sólborgar Steinþórsdóttir, hótelstjóra: solborgs@icehotels.is.

Skills

  • Food and Beverage Operations
  • Financial Management
  • Leadership
  • Staff Scheduling
  • Cost Control
  • Event Management
  • Quality Assurance

Related jobs

Iceland Hotel Collection by BerjayaApply for this job