JobConnect

Aðstoð í eldhús

Aðstoð í eldhúsi

Kvistaborg er fjögurra deilda leikskóli, staðsettur neðst í Fossvogsdalnum. Einkunnarorð Kvistaborgar eru: hugrekki, hlýja, hlustun og hvatning.

Við erum heilsueflandi leikskóli, og erum svo heppin að hafa matráð og eldhús sem vinnur allt frá grunni. Það er mikilvægt að viðkomandi treysti sér til að elda og hafi áhuga á eldamennsku.

Helstu verkefnin eru frágangur og uppvask eftir máltíðir, vörumóttaka og frágangur og þrif. Eldhúsið sér einnig um þvottahús skólans, þvott og frágang.

Við leggjum áherslu á jákvæðni og góð samskipti, sjálfstæði í vinnubrögðum og að viðkomandi geti sýnt frumkvæði í störfum og góða vinnusemi. Mikilvægt er að hafa gaman að börnum og að vinna með öðrum.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Hæfniskröfur

  • Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði í bæði töluðu og rituðu máli -Stig B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Menntun og reynsla í eldhússtörfum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og rík þjónustulund
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Fríðindi í starfi

  • 36 st. vinnuvika miðað við 100% starf að meðaltali
  • Sund- og menningarkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Hádegismatur

Nánari upplýsingar um starfið

100% starfshlutfall, starfið er laust 1. október 2026 eða nú þegar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Gunnarsdóttir gudrun.gunnarsdottir@reykjavik.is sími: 863-1545

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.

Skills

  • Food Preparation
  • Kitchen Sanitation
  • dishwashing
  • inventory receiving
  • Cleaning
  • Icelandic Language (B2)
  • Teamwork

Related jobs

ReykjavíkurborgApply for this job