JobConnect

Leikskólastjóri við Rafstöðvarveg í Elliðarádal

Staða leikskólastjóra í leikskóla við Rafstöðvarveg í Elliðarádal er laus til umsóknar. Leitað er að leikskólakennara með farsæla stjórnunarreynslu og leiðtogahæfileika sem er tilbúinn að leiða metnaðarfullt starf í leikskólanum.

Við bjóðum upp á einstakt tækifæri til að taka þátt í að móta nýjan leikskóla frá grunni.

Við leitum að leiðtoga sem vill byggja upp leikskóla þar sem börnin, náttúran, leikurinn og námið eru í brennidepli og þar sem fagmennska, samstarf og velferð eru grundvöllur starfsins.

Leikskólastjórinn fær tækifæri til að móta menningu, starfshætti og faglega sýn leikskólans í nánu samstarfi við starfsfólk, börn, foreldra og nærsamfélag.

Í leikskólanum verður lögð sérstök áhersla á útinám, umhverfismenntun og tengsl barna við náttúruna. Einstök staðsetning leikskólans í Elliðaárdal skapar fjölbreytt tækifæri til náms og leiks í náttúrulegu umhverfi.

Markmiðið er að skapa námsumhverfi þar sem börn fá tækifæri til að rannsaka, uppgötva og læra í gegnum leik og eigin reynslu. Með útinámi og umhverfismenntun gefst börnum tækifæri til að efla forvitni sína, sköpun, sjálfstæði og virðingu fyrir náttúrunni og umhverfinu. Jafnframt verður lögð áhersla á að börn upplifi sig sem virka þátttakendur í samfélagi sínu og læri að bera ábyrgð á umhverfi sínu.

Starfið byggir á Menntastefnu Reykjavíkurborgar og þeirri sýn að börn öðlist menntun og reynslu sem gerir þeim kleift að hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt og samfélag.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu Reykjavíkurborgar.
  • Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
  • Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og starfsmenn.
  • Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og umbótaáætlunum.
  • Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
  • Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar, sýnir ábyrgð, ráðdeild og framsýni í nýtingu fjármuna.
  • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
  • Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskólastigi.
  • Reynsla af stjórnun.
  • Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
  • Þekking og reynsla á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
  • Hæfni til að byggja upp jákvæða og faglega starfsmenningu.
  • Lipurð og hæfni í samskiptum.
  • Sjálfstæði og frumkvæði.
  • Áhugi og reynsla af að leiða þróunarstarf.
  • Íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar

Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á starf í leikskólanum.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda í leikskólum.

Um er að ræða fullt starf og verður ráðið ótímabundið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Lilja Jónsdóttir, deildarstjóri á leikskólaskrifstofu skóla- og frístundasviðs, í tölvupósti Hildur.Lilja.Jonsdottir@reykjavik.is eða í síma 863-2871.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Skills

  • Educational Leadership
  • Staff Management
  • Curriculum Development
  • Outdoor Education
  • Environmental Education
  • Parent and Community Engagement
  • Strategic Planning

Related jobs

ReykjavíkurborgApply for this job