Starfsfólk í heimaþjónustu
- Sóltún
- Hafnarfjörður, Iceland
- ISK 3,600,000 – ISK 4,200,000
Sóltún heilbrigðisþjónusta auglýsir eftir starfsfólki í umönnun
Langar þig til að starfa í fjölbreyttu og gefandi starfsumhverfi og um leið auðga líf fólks? Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig. Sóltún Heima leitar að duglegum, jákvæðum, stundvísum einstaklingum með hjartað á réttum stað við umönnun aldraðra í heimahúsi.
Við leitum að starfsfólki sem hefur áhuga á samskiptum við fólk og eru tilbúið til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Starfið felur í sér umönnun og aðstoð við íbúa á heimili þeirra. Umsækjendur þurfa að hafa ríka samskiptahæfni og hafa gaman af því að umgangast eldra fólk. Reynsla af umönnun og áhugi á hreyfingu er kostur en ekki nauðsynleg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og er um tímabundið starf að ræða í eitt ár með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Staðsetning: Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði
Helstu verkefni í heimaþjónustu
- Umönnun og aðstoð við daglegar athafnir íbúa
- Stuðningur við vellíðan og félagslega virkni íbúa
- Heimahreyfing
- Samvinna við samstarfsfólk í þverfaglegu teymi
Hæfniskröfur
- Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
- Stundvísi og ábyrgð
- Bílpróf
- Góð íslenskukunnátta (C1/C2)
- 20 ára aldur eða eldri
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Starfskjör og fyrirkomulag:
- Vinnufyrirkomulag er dagvinna
- Starfshlutfall er 50-60%
- Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Hlífar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Íþróttastyrkur
- Samgöngustyrkur
- Fatapeningur
Um Sóltún heilbrigðisþjónustu
Sóltún heilbrigðisþjónusta er leiðandi þjónustuaðili á sviði velferðar- og öldrunarþjónustu á Íslandi. Markmið okkar er að auka velsæld og lífsgæði eldra fólks með fjölbreyttri og heildrænni heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á virðingu, sjálfstæði og stuðning í daglegu lífi.
Undir merkjum Sóltúns eru rekin hjúkrunarheimili í Reykjavík og Hafnarfirði, auk endurhæfingarþjónustu, dagdvalar og heimaþjónustu. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks sem vinnur saman að því að tryggja öryggi, vellíðan og gott líf íbúa og skjólstæðinga.
Hjá Sóltúni er lögð sérstök áhersla á nærandi samfélag þar sem umhyggja, fagmennska og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfsfólkið er mesti styrkleiki þjónustunnar og því er rík áhersla lögð á gott starfsumhverfi, samvinnu og tækifæri til starfsþróunar.
Nánari upplýsingar veitir Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri Sóltúns Heima, osk.sigurdardottir@soltun.is
Skills
- Personal Care Assistance
- Elderly Care
- Communication Skills
- Home Health Aide
- Mobility Support
- Icelandic Language (C1/C2)
- Driving License



