Hjúkrunarfræðingur
- Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
- Garðabær, Iceland
- ISK 7,200,000 – ISK 9,000,000
Heilsuvernd Vífilsstöðum leitar eftir hjúkrunarfræðingum til starfa. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
Á Heilsuvernd Vífilsstöðum eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að einstaklingum til starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Almenn hjúkrunarstörf
Skipulag og ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við sett markmið og gæðastefnu Heilsuverndar
Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
Þátttaka í þróunarverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur
Áhugi á öldrunarþjónustu og vinnu með öldruðum
Starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg
Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
Góð almenn tölvukunnátta
Góð samskiptahæfni
Þolinmæði og sveigjanleiki
Umsækjendur þurfa að lágmarki að hafa grunn kunnáttu í íslenskri tungu
Umsóknarfrestur er til og með 27. september 2026.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað. Ráðið er í starfið óháð kyni. Nánari upplýsingar veitir Aníta Magnúsdóttir, forstöðumaður, anitam@hv.is eða Anna Valdimarsdóttir deildarstjóri, anna@hv.is.
Heilsuvernd samstæðan er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Markmið okkar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan. Því hver dagur er dýrmætur.
Skills
- Nursing Care
- Geriatric Care
- Patient Assessment
- Care Planning
- Quality Assurance
- Electronic Health Records
- Team Collaboration



