JobConnect

Starfsmaður í skipaafgreiðslu á Reyðarfirði

  • Eimskip
  • Iceland
  • ISK 9,360,000 – ISK 11,440,000

Eimskip leitar að jákvæðum, drífandi og áreiðanlegum einstaklingi til starfa í skipaafgreiðslu við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði.

Um er að ræða fjölbreytt og líflegt starf þar sem helstu verkefni felast í móttöku, lestun og losun skipa , ásamt almennum verkefnum á hafnarsvæðinu. Unnið er á 8 tíma dag- og kvöldvöktum.

Við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð starfanna

  • Lestun og losun skipa
  • Almenn lyftarastörf
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Lyftararéttindi J og K eru kostur en ekki skilyrði, þar sem þeim sem ráðinn verður býðst að sækja lyftaranámskeið á vegum Eimskips ef þörf er á
  • Almenn tölvukunnátta
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum

Fríðindi í starfi

  • Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira
  • Gott mötuneyti og matur niðurgreiddur fyrir starfsfólk

Nánari upplýsingar veitir Kristinn Þór Jónasson þjónustustjóri, krj@eimskip.com.

Umsóknarfrestur er til og með 25. september 2026.

Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.

Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.

Skills

  • forklift operation
  • Cargo Handling
  • Ship Loading and Unloading
  • Safety Compliance
  • Basic Computer Skills
  • Teamwork
  • Flexibility

Related jobs

EimskipApply for this job