Starfsmaður í kjötdeild (hlutastarf)
- Krónan
- Iceland
- ISK 5,200,000 – ISK 6,240,000
Krónan leitar eftir áhugasömum og duglegum einstakling í starf kjötstjóra á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða helgarstarf þar sem vinnutíminn er 7:00-15:00 laugardaga og sunnudaga.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfsmaður í kjötborði fær tækifæri til að ganga til liðs við skemmtilegan hóp samstarfsmanna og takast á við fjölbreytileg verkefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á kjötdeild í heild sinni
- Umsjón með starfsfólki í kjötdeild
- Pantanir og áfyllingar í kjötdeild
- Gæðaeftirlit í kjötdeild
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla í kjötvinnslu eða hafa unnið í kjötborði er kostur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
- Stundvísi og dugnaður
- Menntun í matreiðslu eða kjötiðn kostur
- Áhugi á matargerð
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Styrkur til heilsueflingar
- Aðgangur að Velferðarþjónustu Krónunnar
- Afsláttarkjör hjá Krónunni, N1, ELKO og Lyfju
Hjá Krónunni starfar fjölbreyttur hópur fólks og við leggjum mikið upp úr því að skapa góðan vinnustað. Krónan á ánægðustu viðskiptavinina 9. árið í röð og erum með jafnlaunavottun VR.
Umsóknarfrestur er til og með 28. september 202
Skills
- Butchery
- Meat processing
- Inventory Management
- quality control
- Customer Service
- Food Safety
- Team Supervision




