Aðstoðarleikskólastjóri
- Reykjavíkurborg
- Iceland
- ISK 6,000,000 – ISK 7,200,000
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna með leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu kennslu- og uppeldisstarfsins
- Taka þátt í stefnumótun og áætlanagerð leikskólans
- Sjá um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra
- Vera faglegur leiðtogi
- Vera staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans
- Sinna öðrum verkefnum sem leikskólastjóri felur honum
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Reynsla af starfi í leikskóla.
- Reynsla af stjórnun æskileg.
- Lipurð og hæfni í samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð .
- Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf.
- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Nánari upplýsingar
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á starf í leikskólanum.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslends vegna Félags stjórnenda í leikskólum.
Um er að ræða 100% stöðu og verður ráðið ótímabundið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólveig Þórarinsdóttir, leikskólastjóri í tölvupósti solveig.thorarinsdottir@reykjavik.is eða í síma 4117880.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er
Skills
- Leikskólakennaramenntun
- Kennaraleyfisbréf
- Stjórnun
- Samskipti
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Þróunarstarf
- Íslenskukunnátta



