JobConnect

Kjötstjóri á höfuðborgarsvæðinu

  • Krónan
  • Iceland
  • ISK 5,040,000 – ISK 6,240,000

Krónan leitar eftir áhugasömum og duglegum einstakling í starf kjötstjóra á höfuðborgarsvæðinu.

Starfssvið

· Ábyrgð á kjötdeild í heild sinni

· Umsjón með starfsfólki í kjötdeild

· Pantanir og áfyllingar í kjötdeild

· Gæðaeftirlit í kjötdeild

Hæfniskröfur:

· Reynsla í kjötvinnslu eða hafa unnið í kjötborði er kostur

· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

· Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund

· Stundvísi og dugnaður

· Menntun í matreiðslu eða kjötiðn kostur

· Áhugi á matargerð

· Hreint sakavottorð

Vinnutími

Virka daga 07:00-15:00 eða 08:00-16:00 og annan hvern laugardag.

Fríðindi í starfi:

  • Styrkur til heilsueflingar
  • Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
  • Aðgangur að Velferðarþjónustu Krónunnar

Krónan býður upp á fjölbreyttan og metnaðarfullan vinnustað þar sem hægt er að hafa áhrif og leiða verkefni með sýnilegum árangri. Hjá Krónunni starfa um þúsund manns, við eigum ánægðustu viðskiptavinina 9. árið í röð og erum með jafnlaunavottun VR.

Umsóknarfrestur er til og með 22. október 2026.

Nánari upplýsingar veitir Björn Bergmann Einarsson bjornb@kronan.is

Skills

  • Kjötvinnsla
  • Gæðaeftirlit
  • Birgðastýring
  • Pantanagerð
  • Leiðtogahæfni
  • Þjónustulund
  • Starfsmannahald

Related jobs

KrónanApply for this job