JobConnect

Starfsmaður heimastuðnings

Heimastuðningur Suðaustur óskar eftir að ráða til sín starfsfólk í fjölbreytt og spennandi starf í Reykjavík. Stuðningurinn felur meðal annars í sér samveru við notendur og stuðning við ýmis verkefni og heimilishald. Um er að ræða framtíðarstarf í fullu starfi, þar sem unnið er á dagvinnutíma.

Heimastuðningur veitir aðstoð eftir stuðningsáætlun sem gerð hefur verið við notendur á heimilum þeirra, ásamt aðstoð við almenn heimilisstörf.

Hvetjum öll kyn til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Framfylgir stuðningsáætlun í samráði við ábyrgðaraðila
  • Styður notendur við að viðhalda færni sinni.
  • Þátttaka í teymisvinnu sem tengist starfinu
  • Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni
  • Er vakandi yfir félagslegri, andlegri og líkamlegri líðan notanda og upplýsir yfirmenn um breytingar á líðan.

Hæfnisskilyrði

  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
  • Bílpróf
  • Íslensku kunnátta A1- B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
  • Frumkvæði, vandvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Reynsla af heimaþjónustu eða sambærilegum störfum æskileg.
  • Kunnátta og þekking í almennum heimilisþrifum, kunna skil á efnum og áhöldum notuðum til starfsins er æskilegt.

Fríðindi:

  • Menningar- og sundkort hjá Reykjavíkurborg
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsuræktarstyrkur
  • 36 stunda vinnuvika

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva Dís Einarsdóttir, teymisstjóri í heimaþjónustu eva.dis.einarsdottir@reykjavik.is eða í síma 411-2805.

Skills

  • home support
  • Care Plan Implementation
  • Housekeeping
  • Icelandic language (A1–B2)
  • Driving License
  • Teamwork
  • Communication

Related jobs

ReykjavíkurborgApply for this job