JobConnect

Teymisstjóri stjórnsýslu og gæðamála hjá Barnavernd Reykjavíkur

Barnavernd Reykjavíkur auglýsir eftir öflugum, metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga í starf teymisstjóra stjórnsýslu og gæðamála. Barnavernd Reykjavíkur ber ábyrgð á málum sem unnin eru á grundvelli barnaverndarlaga og heyrir undir velferðarsvið Reykjavíkurborgar.

Teymi stjórnsýslu og gæðamála er stoðteymi Barnaverndar Reykjavíkur. Teyminu tilheyra lögfræðingar, sálfræðingar, deildarfulltrúar og teymisstjóri eftirlits ásamt eftirlitsstarfsmönnum.

Hjá Barnavernd Reykjavíkur starfa sérfræðingar með það að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu við börn og fjölskyldur í vanda. Mikið samstarf er við aðrar stofnanir í borginni og stofnanir ríkisins sem koma að þessum málaflokki.

Umsækjendur verða metnir út frá grunnkröfum varðandi menntun, hæfni og reynslu. Umsækjendur eru beðnir um að sýna fram á í kynningarbréfi og ferilskrá hvernig þeir uppfylla hverja hæfniskröfu. Þeir umsækjendur sem uppfylla best allar hæfniskröfur og sýna fram á það með skýrum hætti í umsókn sinni verða boðaðir í viðtal.

Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.

Velferðarsvið kallar eftir sakavottorðum í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirmaður teymis stjórnsýslu og gæðamála og ber ábyrgð á þverfaglegu starfi Barnaverndar Reykjavíkur og eftirlitsúrræðum.
  • Situr í stjórnendateymi Barnaverndar Reykjavíkur og vinnur með framkvæmdastjóra að tæknimálum og stafrænni vegferð, ásamt því að leiða gæða- og fræðslumál stofnunarinnar.
  • Ábyrgð á lögfræðilegri ráðgjöf og stjórnsýslu á sviði barnaverndarstarfs og forysta í stefnumótun og umbótastarfi.
  • Ábyrgð á málaskráningarkerfi Barnaverndar, skráningu tilkynninga, aðsendra erinda og allri skráningu málavinnslu. Einnig ábyrgð á skjalamálum, skjalageymslu og afhendingu skjala.
  • Situr úthlutunarfundi og ber ábyrgð á málsmeðferð vegna tilkynninga skv. 21. gr. barnaverndarlaga.
  • Heldur utan um öll mál sem lögð eru fyrir Umdæmisráð Barnaverndar Reykjavíkur og ber ábyrgð á barnaverndarmálum sem rekin eru fyrir dómstólum.
  • Ábyrgð mála frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) og tengiliður við stofnunina.

Hæfniskröfur

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
  • Lögmannsréttindi og reynsla af málflutningi æskileg.
  • Þekking og reynsla af stjórnsýslu og skipulagi barnaverndarstarfs.
  • Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla af stjórnun og breytingastjórnun.
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 skv. samevrópskum tungumálaramma.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þyrí Steingrímsdóttir Thyri.Steingrimsdottir@reykjavik.is

Skills

  • Team Leadership
  • Child Protection Law
  • Quality Management
  • Administrative Management
  • Interdisciplinary Collaboration
  • Regulatory Compliance
  • Strategic Planning

Related jobs

ReykjavíkurborgApply for this job